Skip to content

Raftar.is

Narrow screen resolution Wide screen resolution Increase font size Decrease font size Default font size    Default color brown color green color red color blue color
JA slide show
Þú ert hér: Forsíða
Skip to content
Dagskrá Raftasýningar
Langar að vekja sérstaka athygli á Racer atriðinu kl.14.00 á Borgarbraut.
Þar taka vel þjálfaðir ökumenn racerhjól sín til kostanna  og aka á
afturdekkinu einu saman. Þetta verður einstaklega skemmtilegt og spennandi
atriði  að horfa á.
 
  13.30 - 14.00  Sandcross
  14.00 - 14.30  Racer show á Borgarbraut.
  14.30 spilar Stórhljómsveit Bifhjólamanna nokkur lög. Notað verður áður
  óþekkt gerð af Yamaha hljóðfæri.
  15.00 og 16.00 sýna ökumenn Trial hjóla listir sínar við Menntaskólann.

Fullt hús af hjólum og fallegu dóti. Og ekki má gleyma dásamlegu vöfflunum
okkar.
 
Frítt inn.
 
Sumardagurinn fyrsti!
Kæru formenn og félagar! 

Hér kemur Dagskrá Sumardagsins fyrsta á fimmtudaginn kemur. Við biðjum ykkur hér með að setja hana á heimsíður ykkar sem og að vekja athygli á henni hjá þeim sem skoða frekar tölvupóst. Við viljum vekja athygli á því að nú erum við ekki bara að fara upp á Skaga, heldur alla leið aftur í bæinn til að komast líka á tónleika. Þá viljum við vekja athygli á því að við erum að hittast 1/2 tímanum fyrr en í fyrra eða 11:30 til að leggja í hann á slaginu 12:00. Okkur gefst okkur kostur á að snæða á tveimur stöðum; annars vegar á Galito á Akranesi (sérstaklega þeir sem ætla ekki að fara lengra) og hins vegar á Hátúni 2 hjá Landsbjargarkonum (til styrktar björgunarsveitunum)  áður en tónleikarnir hefjast. Hannes og GWRRA félagar okkar munu teyma hersinguna allan tímann að undanskildum lokasprettingum, en þá fá þeir hjálp Árna löggu og félaga. Eins og áður munu sjúkrabíll og hjól verða aftast til að verja okkur frá ágengum bílum og hjálpa til ef óhapp verður á leiðinni. 

Hlökkum til að hittast og hjóla saman sem flestir þennan fyrsta dag sumarsins :)))) 

Bk fyrir hönd formanna hjá Skuggum og Sniglum, 

Doktorinn Trúboðum 
 
Lesa meira...
 
LJÓSANÓTT 2010

LJÓSANÓTT 2010

 

B&B Guesthouse í Keflavík er frátekið laugardaginn 4. september 2010 fyrir “fylli” RAFTA.  Nú er komið að því að skipuleggja haustið kæru félagar og ákveða að skemmta sér í góðum hjólahópi á Ljósanótt.

Í  boði eru 11 herbergi eins og áður,

2          4 manna herbergi                kr. 13.600

1          3 manna herbergi                kr. 12.100

7          2 manna herbergi                kr. 10.400

1          1 manns herb.+ dýna                      kr.   7.500 - (+ dýna kr 10.400)

Magnús, Raftur #74 tekur við pöntunum í síma 893-9454 eftir kl. 18.00.

 

Fyrstir hringja, fyrstir fá.

Haustnefndin

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 Næsta > Endir >>

Úrslit 5 - 8 af 27