Um 40 manna hópur Rafta og aðdáenda þeirra skelltu sér á
Landsmót
Bifhjólamanna sem haldið var í Húnaveri dagana 2-5. júlí. Reyndar
teygðu
sumir vel úr helginni og voru mættir á mánaðarmótum. Heildarfjöldi
gesta
var talinn vera rétt tæplega 500 manns úr flestum bifhjólaklúbbum
landsins.
Veður var eins gott og hugsast gat, og setti það punktinn yfir i-ið
á
frábæru móti. Formleg dagskrá hófst á föstudegi með
Raftaleikum.
Leikjastjóri var Bergur Jónsson, og stóð hann sig feikna vel.
Alls er keppt
í 10 greinum og var skipt niður á föstudag og laugadag. Meðal
þeirra má
nefna; Skíðaganga, blindakstur á hjólbörum með farþega, þríþraut,
haus á
staur, snigillinn, burnout og tegundareipitog. Fyrir ókunna er erfitt
að
geta um hvað þessar greinar snúast um og skal hér aðeins reynt að
varpa
ljósi á tvær þeirra. Haus á staur felur í sér að tveir eru í liði
og
skiptast þeir á að aka hver öðrum í hjólastól. Þá verða þeir að innbyrða
1
bjór og snúa sér í 10 hringi með höfuðið ofan á staur og hlaupa svo á
milli
ákveðinna punkta. Missa flestir allt jafnvægisskyn og er þetta hin
ágætasta
skemmtun. Snigillinn felur í sér eins og nafnið gefur til kynna, að
aka
bifhjóli á sem lengstum tíma afmarkaða braut án þess að missa
jafnvægið.
Raftar hirtu gullverðlaun í skíðagöngu (Hreiðar,Jakob og Sveinn
Dal ) og
haus á staur ( Magnús Jóns og Stefán Dal ), og blönduðu sér í
toppbaráttuna
í flestum öðrum greinum. Við fylgjums grannt með kjöri
íþróttamanns
ársins!! Þá voru einnig veitt verðlaun fyrir fallegasta hjólið
( Spessi ),
og flottasta búninginn ( Stebbi Steingríms sem trúður ). Og
ekki þurftu
landsmótsgestir að kvíða því að verða svangir. Dýrindis
grillmatur og
svaðaleg súpa var boðið uppá til að seðja svangann lýðinn.
Dansleikir voru
haldnir á föstudags og laugardagskvöld og þar komu fram m.a.
Stormur í
aðsigi, Dimma og að sjálfsögðu Sniglabandið. Skemmtun stóð að venju
fram á
morgun og stemming var góð. Gaman var að sjá fólk úr hinum ýmsu
klúbbum,
með mismunandi áherslur, allstaðar af landinu, spjalla og skemmta
sér
saman.
Raftar þakka skemmtunina um helgina, og eru farnir að telja
niður í næsta
landsmót.
F.h. Rafta, Bifhjólafjelags
Borgarfjarðar
Jakob #12
Breytingar á Félagaskrá
Ef Raftar hafa athugasemdir eða tilkynningar varðandi félagaskrá, eins og t.d. ný hjól, e-mail o.sv.f. Sendið þá póst á
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Burnout Video af Landsmóti Bifhjólamanna
Þettar er eitt af Óskabörnum Óðinns, hann Eyjólfur, sem kom sá og sigraði í Burnout keppni á Landsmóti Bifhjólamanna sem haldið var á Lýsuhóli þann 3-6 Júlí seinastliðinn.