Er ekki tilvalið að skella sér í smá æfingarakstur fyrir ljósanótt og mæta
á Sandgerðisdaga ?
SBK planið er þar sem við höfum endað hópkeyrsluna á ljósanótt, ef einhver
veit ekki hvar það er.
Mæting á SBK planið kl. 12.30 laugardaginn 29.ágúst. Lagt verður afstað kl.
13.00.Þegar við komum til Sandgerðis liggur leiðin niður að hátíðarsvæðinu við
höfnina.
Nánari upplýsingar um dagskrá er að finna á http://sandgerdisdagar.245.is/
Með hjólakveðja,
Ernir
|
|
Á laugardag brugðu nokkrir Raftar sér í hjólatúr. Lagt var af stað frá Borganesi en þeir sem komu lengst að komu frá Keflavík. Fyrsta stop var í Baulunni þar sem allir mótorhjólamenn og konur fá góðar mótttökur og kaffi samkvæmt hefð. Síðan lá leiðin vestur í Dali þar sem Dalamenn slógust í för. Áð var í Króksfjarðarnesi í blíðskaparveðri og drukkið kaffi en tekið skal fram að Raftar þykja með kaffiþystari fólki
Um hádegisbil var Bjarkalundur heimsóttur og borðaður hádegisverður, því næst lá leiðin til Reykhóla en gaman er að hjóla hlíðina fríðu. Á heimleiðinni bættust svo fleiri Raftar í hópinn í Búðardal og var stefnan tekin á Erpstaði í Mðdölum þar sem fjósið var skoðað og að sjálfsögðu fengu sér allir nýlagaðan ís.
kveðja
Raftur#83
|
|
|
Fjölskylduútilega Rafta 2009
Fjölskylduútilega Rafta verður haldinn næstu helgi 7 - 9 ágúst.
Mæting á föstudag og verður kjötsúpa í boði um kvöldið.
Á laugardaginn verður farið í leiki og grillað góðan mat í boði Rafta.
Sundlaugin verður opin ca. frá hádegi til kvölds.
Fólk verður að vera búið að skrá sig fyrir fimmtudagskvöldið hjá
Bergi 690-3901 eða Smára 860-9023.
Munið að taka með sér sundföt og góða skapið.
Kveðja útilegunefndin.
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 21 - 24 af 27 |