Næstkomandi miðvikudagskvöld, kl. 20:00, koma á fund hjá Ferða og útivistarfélaginu Slóðavinir þau Marta Jónsdóttir, lögfræðingur, og Kristófer Kristófersson, verkefnastjóri tæknimála, en bæði starfa þau hjá Umferðarstofu. Þau koma til með fjalla um öll þau mál sem snúa að skráningar og skoðunarmálum mótorhjóla, auk þess sem fjallað verður um breytingar á umferðarlögum og áhrif þeirra. Ásgeir Örn Rúnarsson, stjórnarmaður í Slóðavinum og nefndarmaður Tækninefndar félagsins, heldur erindi um raunveruleg áhrif regluverksins á umhverfi hjólafólks.
Fundurinn verður haldinn í húsakynnum Arctic Trucks, Kletthálsi 3, og hefst eins og áður segir kl. 20:00 .
Félagið kvetur allt áhugafólk að fjölmenna á fundinn.
Okkur þætti ekki verra ef þú gætuð sent þennan póst áfram á þína vini og kunningja. Einnig væri gaman ef auglýsingin, hvort sem það er þessi texti hér að ofan eða myndin hér að neðan, rataði á heimasíður sem þér tengjast.
Með kveðju og von um góða mætingu,
Jakob Þór Guðbjartsson, formaður
Ferða- og útivistarfélagið Slóðavinir
www.slodavinir.org
Frétt um viðburðinn er að finna á vef Slóðavina, www.slodavinir.org .
Rafta heimilið
Rafta heimilið
Þriðjudaginn 17 nóvember skrifuðum við formenn Rafta og björgunarsv. Brákar undir samning um húsnæði til leigu fyrir Rafta, þar með erum við komnir með aðstöðu sem við getum gert að okkar, okkar félagsheimili, þetta er 5 ára samningur svo nú er bara að fara að taka til hendinni. Það er enginn vinnu skylda bara að mæta ef þið getið, það þarf margt að gera og hanna, til að hafa einhverja reglu þá legg ég til að við sem getum, mætum á mánudags og fimmtudagskvöldum þar til annað verður ákveðið, við þurfum líka að vinna á laugadögum til að gefa þeim sem lengra koma tækifæri til að leggja sitt að mörkum. . Svo vantar okkur allt húsgögn, búsáhöld, málingu og spýtur, allt sem þarf til að gera þetta að góðu félagsheimili.
Takk fyrir Stjórn Rafta
Aðalfundur Rafta
Aðalfundur Rafta Dagskrá að loknum aðalfundi, Bjórkvöld
Að loknum aðalfundi verður boðið upp á súpu og brauð sem vertinn á B57 mun reiða fram.
Bjórkvöldið verðu opið öllu mótorhjólafólki og hefst kl.21.00.
Bjór verður á sérstökum vildar kjörum
Að loknu bjórkvöldinu tekur við konsert með mótorhjólaböndunum Stormur í aðsigi og Chernobyl.
Miðaverð inn á konsertinn er stillt í hóf kr.1000