| Ágætu landsmenn.... |
|
|
|
Ágætu landsmenn.... ...sem komu á laugardaginn og nutu dagsins með okkur Röftum á bifhjólasýningunni okkar. Takk fyrir komuna og sjáumst á næsta ári. Einhverjum kann að þykja þetta digurbarkaleg kveðja frá litlum mótorhjólaklúbbi í litlu héraði á litlu landi. En við Raftar stöndum alveg undir svo digurbarkalegri kveðju eftir sýninguna okkar síðastliðinn laugardag. Sýningar okkar undanfarin ár hafa verið vel sóttar, og var þessi engin undantekning þar á og jafnvel gott betur. Þannig að við gefum okkur að það fólk sem kom hafi verið víðsvegar af landinu, eða í það minsta átt ættir að rekja um land allt. Allavega hittum við fólk sem gerði sérferð af Norðurlandi, Vestfjörðum og af Suðurnesjum og Suðurlandi einvörðungu til að koma á sýninguna. Og svo að sjálfsögðu þeir sem styttra áttu að fara. En til þess að fólk leggi á sig ferðalag í lítið bæjarfélag til að skoða mótorhjólasýningu sem haldin er á hverju ári hlýtur eitthvað sérstakt að vera til staðar. Það er fyrir það fyrsta mikil samstaða hjá mótorhjólafólki á landsvísu. Ef eitthvað er um að vera hjá einhverjum klúbbnum, þá mæta flestir aðrir þar. Ánægjan er tvöföld, jafnvel þreföld, þar hittist hjólafólk, skoðar falleg hjól og fær svo bráðskemmtilegann hjólatúr í kaupbæti. Í öðru lagi er svo skemmtunin, að sjá eitthvað nýtt, öðruvísi eða skemmtileg sýningaratriði. Og fyrir „venjulega“ fólkið, þá er oft gaman að skoða fjölbreytta flóru bifhjólamanna sem eru virkilega af öllum stærðum og gerðum .Að standa fyrir sýningu er eitt, en að gera hana að árlegum viðburði er allt annar handleggur. Hættan á að festast í sama farinu er mikil, sérstaklega þar sem bara er verið að vinna með eitt áhugasvið. Og vissulega höfum við Raftar glímt við þetta vandamál. Stundum orðið að endurtaka okkur, oft vegna ytri aðstæðna, plássleysis eða bara hreint út sagt þvermóðsku þeirra sem ráðið hafa umhverfi okkar. Og svo pínulítið vegna okkar eigin hugmyndaleysis. En augu fólks og okkar sjálfra eru að opnast fyrir öllum þeim möguleikum sem hjólamennskan hefur uppá að bjóða. Í ár gátum við í fyrsta sinn boðið fólki að sjá tilþrif sem ekki hafa verið á boðstólum fyrr. Það fyrra, Sandcrossið, eða kannski frekar drullumallið höfum við reynt að fá leyfi fyrir í það minnsta tvígang áður en án árangurs. Þar lágu fyrir ástæður sem ekki verða taldar upp hér, en í ár var tekin sú áhætta að leyfa okkur að bjóða upp á þetta atriði. Og með góðum árangri. Gestir skemmtu sér konunglega, þáttakendur voru uppgefnir og ekkert rask sá á eftir. Annað atriði, öllu áhættumeira, var einnig frumsýnt. Það var götuprjón á Borgarbraut. Til útskýringar þá eru þetta racer mótorhjól sem aka bara á afturhjólinu. Það var hugmynd sem hefur komið upp áður, en aldrei verið nefnd. Nú var ákveðið með stuttum fyrirvara að kanna farveginn og vita hvort möguleiki væri að framkvæma svona atriði. Við getum nú ekki sagt að allir hafi klappað fyrir hugmyndinni, en að uppfylltum öllum þeim skilyrðum sem sett voru gátum við sýnt þetta nýja atriði og ekki er hægt að segja annað en það hafi vakið lukku. Að ógleymdum snillingnum sem ók vélhjóli sínu yfir bílhræ fram og til baka og lék allskyns kúnstir við mikinn fögnuð áhorfenda. Þessi atriði ásamt sýningar- og söluumboðum sem buðu vörur sínar í Menntaskólanum settu sitt sérstaka mark á þennann dag.
Og ekki gerast hlutirnir að sjálfu sér. Að baki liggur mikil vinna og skipulagning. Raftar hafa undanfarin ár haft þann háttinn á að skipa sérstaka sýningarnefnd og ber hún hitann og þungann af verkefninu. Sem betur fer eru félagsmenn Rafta viljugir að taka að sér verkefni sem nefndin úthlutar þeim og ganga hratt til verka. Sýningarnefndin vill byrja á að þakka félögum sínum í Röftum ásamt börnum og tengdabörnum þeirra kærlega fyrir hjálpina. Án samstöðu og samheldni í hópnum væri þetta ekki framkvæmanlegt. Þau fyrirtæki sem styrktu okkur með auglýsingakaupum, eða hjálpuðu á annann hátt, þökkum við stuðninginn. Allmikill kostnaður er við framkvæmd svona sýningar, og þar sem enginn aðgangseyrir er innheimtur af gestum treystum við á að ná upp í kostnað á þennann hátt. Borgarbyggð, Slökkviliðinu, Lögreglu og björgunarsveitinni Brák þökkum við veitta aðstoð og gæslu. Umboðunum, Icebike,VP Varahlutir, Renta ehf, JHM Sport og Suzuki sem voru með okkur þetta árið, og sýna okkur alltaf góða tryggð, þökkum við samskiptin og vonumst eftir þeim á næsta ári. Vélhjólafjelagi Gamlingja þökkum við kærlega fyrir að koma með gullmolana sína til okkar og leyfa fólki að sjá hve mikilvægt starf er unnið í uppgerð gamalla hjóla. Prjónklúbbnum Borgarprjón þökkum við fyrir frábæra sýningu á Borgarbrautinni, drullumöllurunum frá Suzuki umboðinu þökkum við fyrir að ganga hreint til verks og drulla allt út og svo má ekki gleyma Jóa Kef á Trial hjólinu sem sýndi ótrúlega takta. Sérstakar þakkir fær Guðrún B. Friðriksdóttir hjá Nepal fyrir hönnun og umsjón með auglýsingaplakatinu. Öllum öðrum sem komu beint eða óbeint að sýningunni viljum við einnig þakka aðstoðina s.s. Skessuhorni, tæknimönnum ofl. ofl. ofl. Að lokum viljum við minna á heimasíðuna okkar www.raftar.is en þar eru að finna myndir frá sýningunni.
Ágætu landsmenn, sem
komu á laugardaginn og nutu dagsins með okkur Röftum á
bifhjólasýningunni
okkar. Takk fyrir komuna og sjáumst á næsta ári. Fyrir hönd Sýningarnefndar Rafta 2010 Jakob Guðmundsson Raftur #12 |
| < Fyrri | Næsti > |
|---|