Skip to content

Raftar.is

Narrow screen resolution Wide screen resolution Increase font size Decrease font size Default font size    Default color brown color green color red color blue color
JA slide show
Þú ert hér: Forsíða
Skip to content
Fjölskylduútilega

Sælar elskurnar!

Núna væri gott að fólk færi að huga að fjölskylduútilegu. Láta nefndina vita hvursu margir koma úr þeirra fjölskyldu, fyrir þriðjud. 3/8. (daginn eftir að Óla á afmæli.) Berg í síma 6903901 eða Dabba í síma 8965001. Taka sig svo til og mæta í Munaðarnes föstud. 6/8.

Gjald fyrir ógreidda Rafta (fullorðna) er 1000kr.

 

p.s. og þeir sem ætla á útihátíðina "tvær fertugar, en önnur í burtu" til Dagrúnar í Þykkvabæ 13 - 15 ágúst, drífið í að láta Berg vita fyrir fimmtudag 5/8.

 

Kveðja sumarnefndin.

 
Vestfjarðarferð
Vestfjarðarferð

þeir Raftar sem hafa áhuga á að fara vestur á firði og heilsa uppá Þór og Hönnu
helgina 23-25 júli hafið samband við Guðjón í sima 8931361 fyrir fimmtudaginn 15 júli.

Nánari ferðaáætlun verður ákveðin af þeim sem ætla fara í ferðina.
 
Ágætu landsmenn....

Ágætu landsmenn....

...sem komu á laugardaginn og nutu dagsins með okkur Röftum á bifhjólasýningunni okkar. Takk fyrir komuna og sjáumst á næsta ári.

Einhverjum kann að þykja þetta digurbarkaleg kveðja frá litlum mótorhjólaklúbbi í litlu héraði á litlu landi. En við Raftar stöndum alveg undir svo digurbarkalegri kveðju eftir sýninguna okkar síðastliðinn laugardag. Sýningar okkar undanfarin ár hafa verið vel sóttar, og var þessi engin undantekning þar á og jafnvel gott betur. Þannig að við gefum okkur að það fólk sem kom hafi verið víðsvegar af landinu, eða í það minsta átt ættir að rekja um land allt. Allavega hittum við fólk sem gerði sérferð af Norðurlandi, Vestfjörðum og af Suðurnesjum og Suðurlandi einvörðungu til að koma á sýninguna. Og svo að sjálfsögðu þeir sem styttra áttu að fara. En til þess að fólk leggi á sig ferðalag í lítið bæjarfélag til að skoða mótorhjólasýningu sem haldin er á hverju ári hlýtur eitthvað sérstakt að vera til staðar. Það er fyrir það fyrsta mikil samstaða hjá mótorhjólafólki á landsvísu. Ef eitthvað er um að vera hjá einhverjum klúbbnum, þá mæta flestir aðrir þar. Ánægjan er tvöföld, jafnvel þreföld, þar hittist hjólafólk, skoðar falleg hjól og fær svo bráðskemmtilegann hjólatúr í kaupbæti. Í öðru lagi er svo skemmtunin, að sjá eitthvað nýtt, öðruvísi eða skemmtileg sýningaratriði. Og fyrir „venjulega“ fólkið, þá er oft gaman að skoða fjölbreytta flóru bifhjólamanna sem eru virkilega af öllum stærðum og gerðum

Lesa meira...
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 Næsta > Endir >>

Úrslit 1 - 4 af 26